Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

x-2007

Úgg Úgg...

Útiloka hér með Frjálslynda flokkinn.  Helst til of róttækur í sínum málflutningi og þykir enn... Með vísan í hvaða dægurlag er þessi setning??  En, jæja, þeir hafa sem sagt ekki alveg náð til mín.  Finnst þeir einum of einhæfir í sinni baráttu þar sem einblínt er á stöðvun innflutnings útlendinga og úrbætur á kvótakerfinu.  Einnig mjög svo óraunhæft og helst til dýrt kosningaloforð í 150 þúsund króna skattleysimörkum.  Myndi kosta ca 60 milljarða sú hækkun...

eg


Svona Bloggar Maður Um Frétt Af Mbl.Is...

Grmbl...
mbl.is Munnmök ein ástæða krabbameins í hálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt Blogg

Halló.

VÍS dagurinn á laugardaginn var.  Snilldardæmi þar sem fólk gerði sér glaðan dag frá því kl. 13 og langt fram á nótt.  Fór þetta fram á mínum gamla heimavelli inní Smára.  Innri skoðun var þemað framan af degi, þar sem kaffihúsastemming var sköpuð og fólk að lýsa eigin starfi fyrir samstarfsfélögum.  Svo var liðinu, ca 200 manns, skipt uppí 4 svið og hin ýmsu skemmtiatriði æfð sem síðar yrðu sýnd fyrir hina.  Gríðarleg stemming í salnum þegar atriðin voru flutt og fagnaðarlátunum ætlaði hreinlega aldrei að linna.  Skemmst frá því að segja að minn hópur fékk það verkefni að vera með danssýningu...  Tangó var það heillin þar sem tvö og tvö dönsuðu saman.  Kalt mat af minni hálfu þetta; ég var langbestur og aðrir aðeins síðri... 

Indverskur matur og barinn opinn.  Allavega fyrir flesta...  Komst að því að ég er að vinna með ágætis fólki sem vel er hægt að röfla í.  Hélt svo heim í kringum miðnættið, gríðarlega sáttur við daginn.

Vil enda þennan pistil á að setja inn mynd þar sem það var eina ástæðan fyrir þessu bloggsíðuskiptingarbrölti mínu að það er miklu auðveldara að skella inn mynd í bloggfærslum þessarar síðu.  Vantaði sárlega þann fítus þegar ég var að bulla um alla vitleysingana sem urðu á leið minni á íþróttaferlinum.

Finnst við hæfi að skella inn mynd af Flemming Oliver Jensen, einum alklikkaðasta þjálfara sem ég hef kynnst.  Þjálfaði mig í Ajax/Farum.  Það sést vel á mynd hversu klikkaður maðurinn er...

eg

Flemming Oliver Jensen

 

 


Champions League

Góðan daginn.

Massívar undanúrslitaviðureignir að baki í Meistaradeildinni.  Þar má segja að hefðin hafi haft betur gegn mögulega betri liðum.  Samtals eiga Liverpool og AC 11 (5 hjá LFC og 6 hjá AC) evróputitla meistaraliða á móti 2 hjá ManU og Chelsea.  Enn eitt magnað evrópukvöld á Anfield varð að veruleika þegar Rauði Herinn sló milljarðalið Chelsea út.  Sanngjarn sigur í þeim leik þar sem Liverpool var betri aðilinn, öskraður og sunginn áfram af mögnuðum stuðningsmönnum liðsins.  Minnisstæð rimma sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem mínir menn höfðu mun sterkari taugar og kláruðu dæmið.  Niðurstaðan því ljós, 2. úrslitaleikur liðsins á þremur árum staðreynd.  Ágætis árangur hjá ekki stærra liði...

Mótherjinn í Aþenu 23. maí, líkt og fyrir 2 árum verður AC Milan.  Slógu United út á mjög sannfærandi hátt með 3-0 bursti í seinni leik liðanna á San Siro.  Ekki kannski óskamótherjinn miðað við spilamennsku þeirra í fyrri hálfleik á móti ManU.  Í úrslitaleik getur reyndar allt gerst en ljóst er að Milan hyggur á hefndir, blóðhefndir...  Sjálfsagt vakna Maldini og co enn upp á nóttunni í svitabaði vegna martraða um Istanbul ævintýrið ógurlega.

Kveð að sinni.

eg


Útilokunaraðferðin

Góða kvöldið.

Sit hér heima með hund á lærum og tölvu á sófa að hripa þessi orð niður.  Merkilegar þessar tölvur, maður ýtir á fullt af tökkum og stafir birtast á upplýstum skjá!  Heillandi apparat.

En eins og áður hefur komið fram, þá er maður að myndast við það að mynda sér skoðun á því hvaða vitleysinga maður á að kjósa í kosningunum 12. maí nk.  Maður hefur nefnilega heyrt að maður eigi að nýta kosningarétt sinn, það sé jú hornsteinninn í öllum lýðræðissamfélögum eins og við búum í.  Hvað ætli myndi gerast ef enginn kysi??  Allir myndu hugsa eins; ja eitt atkvæði skiptir akkúrat engu "god damn fucking" andskotans máli!  Spurning hvort tölur síðustu skoðanakönnunar yrði látin gilda.  Eða bara úrslit síðustu Alþingiskosninga.  En ég held því fram, "at the end of the day"  þá skiptir það litlu sem engu máli hverjir sitja í stjórn og hverjir í andstöðu. 

Ég hika ekki við að beita útilokunaraðferðinni áfram.  Hef nú þegar strikað yfir VG og Íslandshreyfinguna.  Strika hér með yfir Framsókn og ástæðan er einföld.  Kom við í Glæsibæ um daginn á leið heim úr vinnu.  Var að sækja björgina í búið.  Brauðhleif og fleiri nauðsynjar eins og gengur.  Gekk þá í flasið á frambjóðendum Framsóknar, þar sem þau voru að dreifa Opalpakka og bæklingi um sjálft sig.  Skemmst frá því að segja að opalið fór illa í magann á undirrituðum og mikill viðrekstur herjaði á heimilið þetta kvöld.  Fnykinn lagði yfir borgina og bárust fréttir reglulega inn vegna þessa.  Maður á Kjalarnesi þungt haldinn... Kona á Álftanesi þjáist af lungnasamþjöppun sökum óþefjan og páfagaukur í næsta húsi lést í rólunni sinni...  Því ljóst að þetta fólk kýs elvar ekki.  Ljót og mjög þung reynsla.

eg


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband