x-2007

Úgg Úgg...

Útiloka hér með Frjálslynda flokkinn.  Helst til of róttækur í sínum málflutningi og þykir enn... Með vísan í hvaða dægurlag er þessi setning??  En, jæja, þeir hafa sem sagt ekki alveg náð til mín.  Finnst þeir einum of einhæfir í sinni baráttu þar sem einblínt er á stöðvun innflutnings útlendinga og úrbætur á kvótakerfinu.  Einnig mjög svo óraunhæft og helst til dýrt kosningaloforð í 150 þúsund króna skattleysimörkum.  Myndi kosta ca 60 milljarða sú hækkun...

eg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einhæfir? einblínt á 2 málefni?

held að þú ættir að skoða málefnaskránna og stefnumál þeirra fyrir þessar kosningar.

150 þús kr skattleysismörk fyrir þá sem eru með tekjur undir 1,8 milljónum og svo stiglækkandi að 3 milljónum og þá fellur það alveg niður í 112 þús sem skattleysismörkinn ættu að vera í dag.

þetta kostar engan veginn 60 milljarða....
skil ekki hvaðan þú færð þær tölur.

Kynntu þér þetta frekar áður en þú dæmir.

Arnar Guðjónsson (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 19:25

2 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Sæll Elvar

Tillögur okkar kosta enga 60 milljarða. Við höfum reiknað þetta út. Það er um 21 milljarður. Við hækkum skattleysismörk þeirra sem undir 1,8 milljónir á ári í 150.000. Hinna í 112.000 kr. Hér eru málefnaáherslur okkar, m. a. í skattamálum. Við ætlum að finna pening fyrir þessum skattalækkunum í áframhaldandi hagvexti (2%), niðurskurði í ríkisgeiranum þar sem víða má spara eins og í utanríkisþjónustu, og svo með því að leigja út aflaheimildir.

Hér er vefsjónvarp okkar.

Bestu kveðjur,

MÞH

Magnús Þór Hafsteinsson, 10.5.2007 kl. 19:40

3 Smámynd: Elvar Guðmundsson

Aha!  Nú skil ég þetta allt miklu betur og ætla hiklaust að merkja við Frjálslynda flokkinn á laugardaginn.  Kærar þakkir fyrir góð komment á síðuna mína...

Elvar Guðmundsson, 10.5.2007 kl. 21:14

4 Smámynd: Heiðar Birnir

Gaman að sjá að sjálfur varaformaðurinn stendur netvaktina....

Heiðar Birnir, 11.5.2007 kl. 14:08

5 Smámynd: Snæþór Sigurbjörn Halldórsson

Hann ætti kannski frekar að fara að henda þessari Risessu úr landi.  Það eru 17 atvinnulausir risaveiðimenn á Raufarhöfn sem misstu vinnuna útaf þessum skandal.

Snæþór Sigurbjörn Halldórsson, 11.5.2007 kl. 16:00

6 Smámynd: Elvar Guðmundsson

Já, líst ekkert á þessa Risessu.  Skíthræddur við hana.  Sá hana á vappi hér í hverfinu mínu áðan...

Elvar Guðmundsson, 11.5.2007 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband